Verðandi kennarar aðstoða við kennslu í Evrópusambandslandi. Styrkir eru veittir í 3 - 8 mánuði, kennsluskylda er 12 - 16 stundir á viku. Markmiðið er að styrkja sig í sínu kennslufagi, efla tungumálakunnáttu og auka skilning og þekkingu á menningu annars Evrópulands og kynna sína eigin menningu, tungu og þjóð.
Skilyrði
Skilyrði er að umsækjendur hafi lokið kennaraprófi eða að minnsta kosti tveggja ára háskólaprófi, hafi ekki kennt áður og stefni að kennslu.
Sjá leiðbeiningabækling fyrir aðstoðarkennara og 'gistiskóla'
Nánari útlistun á ensku - aðstoðarkennsla (einstaklingar) (.pdf, 56 kb)
Umsóknarfrestur er til 29. janúar 2010
Umsóknum skal skilað á ensku og í tveimur eintökum til:
Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins
Háskólatorgi v/Sæmundargötu
101 Reykjavík
Uppgjör - mat
Eftir heimkomu þarf að skila inn öllum ferðakvittunum til Landsskrifstofu, svara 'evaluation' spurningalistanum og taka saman stutta reynslusögu um dvölina (sjá dæmi um reynslusögu hér á stikunni til vinstri).



