Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA

 

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins
Ferðastyrkir fyrir kennara á vinnustofur í maí-júní 17.04.2012

Ferðastyrkir fyrir kennara í maí-júní:

  • 1) Tengslavinnustofa fyrir grunn- og framhaldsskólakennara úr öllum fögum í Reims, Frakklandi, 23 til 25. maí nk.
  • 2) Símenntunarvinnustofa (Professional Development Workshop) fyrir stærðfræðikennara á grunnskólastigi í Lissabon, Portúgal, 31. maí til 2. júní nk.
  • UMSÓKNARFRESTUR TIL OG MEÐ 22. APRÍL NK.


1) TENGSLAVINNUSTOFA FYRIR GRUNN- OG FRAMHALDSSKÓLAKENNARA Í REIMS, FRAKKLANDI, 23 til 25 MAÍ

Markhópur: Grunn- og framhalsskólakennarar úr öllum fögum frá Frakklandi, Svíþjóð, Noregi, Íslandi, Finnlandi og Belgíu (reiknað með um 30 þátttakendum).

Styrkur fyrir ferð, þátttöku, gistingu og uppihaldi fyrir 3 kennara í boði.

Skipuleggjandi: Landskrifstofa eTwinning í Frakklandi.

Tungumál: Enska.

Innihald: eTwinning kynnt og lögð áhersla á að finna samstarfsaðila fyrir næsta skólaár

Skilyrði að vera tilbúin(n) að vinna að eTwinning-verkefni á næsta skólaári (að því gefnu að samstarfsaðili finnist).

Ekki gerð krafa um þekkingu á eTwinning - en bæði byrjendur og lengra komnir í eTwinning geta sótt um.

Dagskrá (uppkast) er að finna í þessu skjali: Draft agenda Groups Reims (.pdf, 150 k)

UMSÓKNARFRESTUR TIL OG MEÐ 22. APRÍL

 

2) SÍMENNTUNARVINNUSTOFA FYRIR STÆRÐFRÆÐIKENNARA Á GRUNNSKÓLASTIGI Í LISSABON, PORTÚGAL, 31. MAÍ til 2. JÚNÍ

Þema: Stærðfræði og upplýsingatækni

Markhópur: Stærðfræðikennarar á grunnskólastigi allsstaðar að úr Evrópu (reiknað með um 80 þátttakendum).

Styrkur fyrir ferð, þátttöku, gistingu og uppihaldi fyrir 2 kennara í boði.

Skipuleggjandi: Landskrifstofa eTwinning í Portúgal.

Tungumál: Enska.

Innihald: Fjallað um eTwinning, upplýsingatækni og stærðfræði.

Ekki gerð krafa um þekkingu á eTwinning - en bæði byrjendur og lengra komnir í eTwinning geta sótt um.

Skilyrði að vera tilbúin(n) að vinna að eTwinning-verkefni (að því gefnu að samstarfsaðili finnist).

Dagskrá (uppkast) er að finna í þessu skjali: Draft_agenda_Lissabon_PDW (.doc, Word, 108k).

UMSÓKNARFRESTUR TIL OG MEÐ 22. APRÍL

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook