Umsóknarfrestir Leonardo 2013

Yfirfærsluverkefni 31 janúar 2013
Mannaskipti 1. febrúar 2013
Samstarfsverkefni 21. febrúar 2013


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 

Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar




NSN_smellihnappur_2.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 


 
uglur.jpg

Nú er verkefnið OWLS (Outcome that Works for Stakeholders) orðið 1,5 ára en verkefnið fékk  389.036 evru styrk frá Menntaáætlun Evrópusambandsins

ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)

Umsóknarfrestur um Leonardo yfirfærslu og mannaskiptaverkefna fer að renna út:

Yfirfærsluverkefni - fimmtudaginn 31. janúar
Mannaskiptaverkefni – föstudaginn 1. febrúar

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 17. janúar 2013 kl. 15-17. Allir velkomnir!

Framkvæmdastjórn ESB hefur opnað heimasíðuna EU Skills Panorama sem er ætlað að veita upplýsingar um skammtíma- og langtíma hæfniþarfir. Heimasíðan inniheldur m.a. upplýsingar um stöðu mála á Íslandi.
Sjá: http://euskillspanorama.ec.europa.eu/

Everything is Possible er með 6 langtíma verkefni í Leeds og Bradford á Englandi og leita að samstarfsaðilum. Verkefnin er:

- umhverfisverkefni  - Rauðakrossverkefni   -  viðburðaverkefni - æskulýðsverkefni innan Babtistakirkju og félagsmiðstöðvar.

Eurydice hefur birt skýrsluna Developing Key Competences at School in Europe: Challenges and Opportunities for Policy

Við minnum á umsóknarfresti Leonardo verkefna innan starfsmenntahluta Menntaáætlunar ESB. Þeir nálgast óðum og eru eftirfarandi:

Yfirfærsluverkefni - 31. janúar 2013
Mannaskipti - 1. febrúar 2013
Samstarfsverkefni - 21. febrúar 2013

Auglýst er eftir matsmönnum til að meta umsóknir í;

LEONARDO, starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins
COMENIUS, evrópsku skólasamstarfi
GRUNDTVIG, evrópsku samstarfi um fullorðinsfræðslu

Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda rafrænt á netfangið: lme@lme.is í síðasta lagi 1. febrúar n.k.

INSTITUTO DE FORMACIÓN INTEGRAL  frá Madrid, Spáni leitar að samstarfi fyrir LLP kallið 2013. Hafa áhuga á:

Grundtvig Multilateral, Leonardo Development of Innovation, Transfer of Innovation, Networks and Transversal Programmes

 

Searching for a partner for the call LifeLong Learning Programme 2013 (in particular Grundtvig Multilateral, Leonardo Development of Innovation, Transfer of Innovation, Networks and Transversal Programmes).

Rannís tekur breytingum nú um áramótin, en frá og með 1. janúar 2013 flytjast Landskrifstofur Menntaáætlunar Evrópusambandins og Nordplus til Rannís.

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB á Íslandi er lokuð á aðfangadag, á milli jóla og nýárs og á gamlársdag.

Hluti menntaáætlunarinnar, Erasmus, Comenius, Grundtvig og Etwinning færist um set  þann 1. janúar og heyrir þá undir Rannís.

Komin er á vefinn ný gerð af Europass ferilskrá sem er mun þægilegri að vinna með en sú fyrri. Slóð á íslenska gerð hennar er https://europass.cedefop.europa.eu/editors/is/cv/compose

Landskrifstofa menntaáætlunar ESB stendur fyrir opnum fundi um Félagsmálasjóð ESB (European Social Fund) og reynslu Dana af vinnu með þeim sjóði. Fyrirlesari er Selma Björg Bjarnadóttir, ráðgjafi hjá JobInvest í Esbjerg í Danmörku.

Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur fyrirhugaðri ráðstefnu „Virkni alla ævi" sem halda átti fimmtudaginn 13. desember kl. 13.30-16.30 á Nauthóli í Reykjavík verið frestað um óákveðinn tíma.

IES Santa Lucia - verkmenntaskóli á Gran Canaria leitar að samstarfi (PARTNERSHIP) í rafvirkjun og rafeindavirkjun.

Centro Studi Aurora frá Ítalíu leitar að samstarfi í Leonardo da Vinci áætluninni (PLM og VETPRO)

Escola Profissional de Tomar – Verkmenntaskóli frá Portúgal leitar að samstarfsaðilum. Þau eru með 12 ára reynslu í Leonardo da Vinci og Comenius verkefnum.

CASA DA EDUCAÇÃO  frá Lisabon í  Portúgal leita að samstarfi við verkmenntaskóla eða háskóla í Leonardó mannaskiptaáætlunina.  IVT, PLM og VETPRO.

Kl. 10 - 12 Námskeið í gerð umsókna Leonardo yfirfærsluverkefna
Kl. 13 - 15 Námskeið í gerð umsókna Leonardo mannaskipta- og samstarfsverkefna

Futurum frá Póllandi leitar að samstarfsaðilum. Þau eru með reynslu í öllum Leonardo da Vinci verkefnum (líka í Grundtvig og Erasmus)

Sjötta fréttabréf QALLL samstarfsverkefnis 15 landa um  gæðamál í starfsmenntun og framhaldsfræðslu er komið út. Meðal efnis er viðtal við Marjut Huttunen, gæðastjóri hjá  Luovi starfsmenntaskólanum í Oulu, Finnlandi.

Smelltu hér til að sækja fréttabréfið (pdf)

Evropmerkid.jpg

Atli Lýðsson frá Eflingu stéttarfélag og Vala Valdimarsdóttir frá Mími símenntun tóku stolt á móti verðlaunum fyrir fyrirmyndarverkefnið Yrkju á ráðstefnunni Multilingualism in Europe sem var haldin á Kýpur í september 2012. Verkefnið Yrkja fékk Evrópumerkið 2011 og var valið fyrirmyndarverkefni Íslands frá upphafi veitingar Evrópumerkisins á Íslandi.

Þann 12. nóvember nk. verður haldinn í Brussel upplýsingafundur um þá styrki sem í boði eru í Menntaáætlun ESB árið 2013 (Infoday 2013). Fundurinn verður sendur út í beinni á netinu þar sem  hægt verður að taka beinan þátt í umræðum á spjallvef.

Ertu farin/n að huga að verkefnaumsókn? Vantar þig samstarfsaðila. Hér er slóð í leitarsíðuna "Teamwork" þar sem þú getur leitað eftir samstarfsaðilum: http://llp.teamwork.fr/partner_search/index.php

155_JPG

Föstudaginn 5. október sl. bauð Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB til málþings um samspil atvinnulífs og skóla með sérstakri áherslu á styrkjamöguleika sem bjóðast í Menntaáætlun Evrópusambandsins.

Frummælendur voru m.a. fulltrúi menntamálayfirvalda, fulltrúar frá Leonardo starfsmenntun, Newskills Network, Grundtvig fullorðinsfræðslu og fulltrúi Vinnumálastofnunar. Innlendir aðilar, víðs vegar af landinu, kynntu nýsköpunarverkefni sem hlotið hafa styrki úr Menntaáætlun ESB og vakti það athygli fundargesta hversu fjölbreytt verkefnin eru.

Á vegum QALLL verkefnisins (Quality Assurance in LifeLong Learning with a Focus on Vocational Education and Training and Adult Education) hafa verið valin 39 fyrirmyndarverkefni sem mælt er sérstaklega með á sviði gæðamála í starfsmenntun og framhaldsfræðslu.

EST-verkefnabankinn er í ólagi. Þegar verkefnisstjórar eru að setja inn upplýsingar um verkefni skv. skilyrðum lokaskýrslu fá þeir iðulega upp villumelding. Því er veittur frestur til að ganga frá gögnum inn í EST. Lokaskil á skýrslu eru þó óbreytt, þ.e. 30. september.