Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA

 

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

Á hverju ári stendur Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB fyrir margskonar viðburðum, allt frá stórum ráðstefnum til smærri viðburða eins og kynningum fyrir verkefnisstjóra.


 

31.01.2013
Námskeið í gerð umsókna í menntaáætlun Nordplus

Landskrifstofa Nordplus mun standa fyrir námskeiði í notkun umsóknarkerfisins Espresso og umsóknargerð þann 31. janúar frá 14-16 í húsnæði Endurmenntunar HÍ.

Lesa meira...

17.01.2013
Evrópusamvinna - kynning 17. janúar á Háskólatorgi

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 17. janúar 2013 kl. 15-17. Allir velkomnir!

Lesa meira...

15.01.2013
Námskeið i gerð Comenius samstarfsumsókna - handleiðsla

Námskeið í gerð Comenius samstarfsumsókna verður haldið 15. janúar 2013 Í Námu sal Endurmenntunar Háskóla Íslands, Dunhaga 7.
Á fundinum verða umsóknareyðublöðin skoðuð og umsækjendur leiddir í gegnum umsóknar- og matsferlið.
Hægt er að óska eftir aðgengi að námskeiðinu í gegnum fjarfundabúnað símenntunarstöðva á landsbyggðinni.

Vinsamlega skráið ykkur hér fyrir 11 janúar 2013: http://comenius.is/page/namskeid15jan

Lesa meira...

06.12.2012
Ráðstefnu hefur verið frestað

Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur fyrirhugaðri ráðstefnu „Virkni alla ævi" sem halda átti fimmtudaginn 13. desember kl. 13.30-16.30 á Nauthóli í Reykjavík verið frestað um óákveðinn tíma.

Lesa meira...

27.11.2012
Málstofa um gæði í starfsmenntun og framhaldsfræðslu Námu, sal Endurmenntunar Háskóla Íslands, 7.desember 2012 kl. 9 - 12.

Vinsamlegast skráið þátttöku með tölvupósti á lme@hi.is

Lesa meira...

26.11.2012
Námskeið í gerð Leonardo umsókna verða haldin fimmtudaginn 6. desember 2012 í Námu, sal Endurmenntunar Háskóla Íslands, Dunhaga 7

Kl. 10 - 12 Námskeið í gerð umsókna Leonardo yfirfærsluverkefna
Kl. 13 - 15 Námskeið í gerð umsókna Leonardo mannaskipta- og samstarfsverkefna

Námskeiðin eru ókeypis og öllum opið. Hægt er að óska eftir aðgengi að námskeiðinu í gegnum fjarfundabúnað símenntunarstöðva á landsbyggðinni.
Skráning fer fram í síma 525 4900 eða  með tölvupósti á lme@hi.is

Lesa meira...

21.09.2012
Málþing - Færni til framtíðar: Samspil menntunar og atvinnulífs 5. október kl. 08:00 - 12:30
nsn_logo_high.jpg

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB býður til málþings um samspil atvinnulífs og skóla með sérstakri áherslu á styrkjamöguleika sem bjóðast í  Menntaáætlun Evrópusambandsins.  Frummælendur eru m.a. fulltrúar menntamálayfirvalda, fulltrúar frá Leonardo starfsmenntun,  Newskills Network , Grundtvig fullorðinsfræðslu og fulltrúi Vinnumálastofnunar.  Kynnt verða nýsköpunarverkefni sem hlotið hafa styrki úr Menntaáætlun ESB.  Aðgangur er ókeypis en vinsamlegast skráið þátttöku.

Lesa meira...