Erasmus gerir starfsmönnum kleift að fara sem gestakennarar til samstarfsskóla eða fara í starfsþjálfun til samstarfsskóla eða annarrar stofnunar (þarf ekki að vera háskóli).
Skilyrði
Ekki er nein lágmarksdvöl vegna kennaraskipta en aðkoma að kennslu verður að vera í það minnsta 5 tímar. Starfsþjálfun skal að öllu jöfnu vera 5 dagar en þó er heimilt að víkja frá þeirri reglu í vissum tilvikum telji heimaskóli sérstakar ástæður fyrir því. Æskilegt er að heimaskóli beri slíkar undanþágur undir landskrifstofu Erasmus.
Hámarksdvöl er 6 vikur.
Ekki er skilyrði að starfsmenn séu fastráðnir og geta t.d. stundakennarar sótt um.
Gestakennsla getur verið á hvaða námsstigi sem er, þar með talið doktorsnám. Gestakennslan getur líka verið á hvaða formi sem er (fyrirlestrar, leiðbeining framhaldsnema, málstofur, og fleira)
Starfsþjálfun getur verið á hvaða sviði sem er. Er í boði fyrir ALLA starfsmenn háskóla.
Hægt er að sækja um viðbótarstyrk vegna fötlunar.
Starfsmenn geta tekið þátt í:
- Erasmus kennaraskiptum
- Erasmus starfsþjálfun
- Erasmus hraðnámskeiðum
- Erasmus samstarfsverkefnum
- Erasmus undirbúningsheimsóknir
Hægt er lesa um reynslu annarra af kennara eða starfsmannaskiptum hér. Hægt er að flokka lista eftir dálkum með því að smella efst á viðeigandi dálk. Tvísmella síðan á línu til að fá fram nánari upplýsingar.
Kennaraskipti og starfsþjálfun
- Ferðakostnaður allt að 1000 €
- Dagpeningar á bilinu 120-57 Evrur á dag (fer eftir lengd dvalar og lækka eftir því sem dvöl er lengri).
- Heildarstyrkur getur ekki orðið hærri en 2000 €
Hraðnámskeið
Skólinn sem heldur námskeiðið greiðir styrkinn og getur hann verið breytilegur. Styrkurinn ætti að duga fyrir ferðakostnaði og síðan sér gestaskóli oftast um húsnæði og uppihald.
Samstarfsverkefni
Skólinn sem stjórnar verkefninu heldur utan um styrkinn og greiðir til þátttakenda, t.d. vegna ferða og uppihaldskostnaðar í tengslum við verkefnið.
Undirbúningsheimasóknir
Ef háskólar eru að skipuleggja Erasmus samstarfsverkefni er hægt að sækja um ferðastyrk vegna undirbúningsfundar samstarfsskólanna.


