Grundtvig - fullorðinsfræðsla
Grundtvig er ein af fjórum áætlunum menntaáætlunar ESB.
Margs konar styrkir standa til boða: t.d. evrópsk samstarfsverkefni, endurmenntun, starfsnám/aðstoðarkennsla fyrir verðandi kennara eða starfandi fullorðinsfræðslukennara, sjálfboðaliðaverkefni, vinnustofur og net.
Með Grundtvig, fullorðinsfræðsluþætti og menntaáætlunar ESB, er stefnt að því að efla Evrópuvitund í símenntun/endurmenntun með evrópsku samstarfi. Reynt verður að kynna nýjungar, auka gæði menntunar og auðvelda aðgengi fullorðinna að námi.
Stefnumörkun framkvæmdarstjórnarinnar frá 2006 - það er aldrei of seint að læra og - það er alltaf ástæða til að læra, hnykkir á mikilvægi þess að fullorðnir haldi áfram að læra allt lífið til að eiga auðveldara með að fá vinnu.
Markmið Grundtvig eru:
að gefa fullorðnu fólki möguleika á að bæta þekkingu sína og færni.
að ná til fullorðins fólks með litla menntun
2013 er ár evrópskra borgara og hvetjum við framtíðarumsækjendur að íhuga vel þetta málefni.
Fullorðnir teljast til 16 ára og eldri, utan formlegs skólakerfis.
Fréttir og tilkynningar
Grundtvig styrkir til endurmenntunar fullorðinsfræðslukennara: Næsti umsóknarfrestur er 30. apríl 2013
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð á: http://grundtvig.is/page/endurmenntun
Aðstoðarkennarar - Grundtvig Assistantships (ASS)
Lesa meira...Sjálfboðaliðaverkefni - Senior volunteering projects (SVP): Fyrir 50 ára og eldri.
Lesa meira...ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)
Lesa meira...Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 17. janúar 2013 kl. 15-17. Allir velkomnir!
Lesa meira...


