Leonardo - starfsmenntun
Öll verkefni sem Leonardo áætlunin styður þurfa að falla að einu eða fleiri þessara markmiða:
-
Að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miðar að því að auka kunnáttu og færni og efla persónulega hæfni þeirra
-
Að efla gæði og styðja við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi
- Að auka aðdráttarafl starfsmenntunar og starfsþjálfunar meðal atvinnurekenda og einstaklinga og greiða fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun
Fréttir og tilkynningar
![]() |
Nú er verkefnið OWLS (Outcome that Works for Stakeholders) orðið 1,5 ára en verkefnið fékk 389.036 evru styrk frá Menntaáætlun Evrópusambandsins
ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)
Umsóknarfrestur um Leonardo yfirfærslu og mannaskiptaverkefna fer að renna út:
Yfirfærsluverkefni - fimmtudaginn 31. janúar
Mannaskiptaverkefni – föstudaginn 1. febrúar
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 17. janúar 2013 kl. 15-17. Allir velkomnir!
Framkvæmdastjórn ESB hefur opnað heimasíðuna EU Skills Panorama sem er ætlað að veita upplýsingar um skammtíma- og langtíma hæfniþarfir. Heimasíðan inniheldur m.a. upplýsingar um stöðu mála á Íslandi.
Sjá: http://euskillspanorama.ec.europa.eu/
Eurydice hefur birt skýrsluna Developing Key Competences at School in Europe: Challenges and Opportunities for Policy







