Evrópuverðlaunin verða veitt á árlegri hátíð eTwinning sem að þessu sinni verður haldin í Berlín, 29. til 31. mars nk. Tveir íslenskir kennarar eru í úrslitum í sínum flokkum:
Í flokki 12-15 ára nemenda:
Eva S. Káradóttir, Grunnskóla Vestmannaeyja, með umhverfisverkefnið "Climate change project" sem hún vinnur með kennurum og nemendum frá Danmörku og Eistlandi.
Í flokki 16-19 ára nemenda:
Sigurður Freyr Sigurðarson, Síðuskóla á Akureyri, með upplýsingatækniverkefnið "ICT 4 U", sem hann vinnur að með kennurum og nemendum frá Belgíu, Ungverjalandi, Spáni, og fleiri löndum.
Eva og Sigurður munu fara til Berlínar ásamt starfsfólki landskrifstofu eTwinning og fleiri kennurum víðs vegar að af landinu. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn og krossum fingur.
Nánari upplýsingar um verkefnin sem keppa til úrslita er að finna á þessari slóð:
http://www.etwinning.net/en/pub/awards/european_prizes/shortlist_2012.htm
| Deila þessari frétt: |
|
|



