Ráðstefna um gæðamál í starfsmenntun og framhaldsfræðslu var haldin þann 9. desember síðastliðinn. Mikill áhugi var fyrir málefninu en um 120 manns tóku þátt. Kynnt voru góð dæmi um gæðastarf íslenskra fræðsluaðila og evrópsk verkefni á sviði gæðamála sem unnin hafa verið af íslenskum aðilum. Norskur sérfræðingur í gæðakerfum kynnti evrópsk verkfæri sem þróuð hafa verið til að efla starfsmenntun og framhaldsfræðslu í Evrópu og mikilvægi gæðastarfs í því samhengi. Í lokin ræddu þátttakendur framtíðarsýn og næstu skref í gæðamálum á Íslandi.
Ólafur Grétar Kristjánsson, deildarsérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu opnaði ráðstefnuna og síðan var kynnt gæðastarf og gæðakerfi íslenskra fræðsluaðila:
- Markvisst vinnustaðanám - Helen Williamsdóttir Gray, forstöðumaður hjá IÐUNNI fræðslusetri - kynning
- EQM, European Quality Mark; gæðakerfi framhaldsfræðsluaðila - Örn Alexandersson M.Ed., sérfræðingur hjá BSI á Íslandi - kynning
- Gæðakerfi og -starf í Menntaskólanum í Kópavogi - Helene Pedersen, fagstjóri hjá Menntaskólanum í Kópavogi - kynning
- Hvað finnst notendum um gæði náms- og starfsráðgjafar? - Andrea Dofradóttir, verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands - kynning
- Gæðastarf hjá Þekkingarneti Þingeyinga - Helena Eydís Ingólfsdóttir, sviðsstjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga - kynning
Norski sérfræðingurinn Tormod Skjerve fræddi ráðstefnugesti um evrópsk verkfæri sem þróuð hafa verið til að efla starfsmenntun og framhaldsfræðslu í Evrópu og mikilvægi gæðastarfs í því samhengi.
Titill erindisins: Potential synergies between the European instruments promoting lifelong learning - kynning
Ráðstefunni lauk með umræðum um reynslu og framtíðarsýn við innleiðingu gæðakerfa og leiddi Hróbjartur Árnason, lektor hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands umræðuna.
Ráðstefnustjóri var María Guðmundsdóttir upplýsinga- og fræðslufulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar.
Að ráðstefnuni stóðu Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB sem er aðili að evrópska samstarfsverkefninu QALLL (Quality Assurance in Lifelong Learning), Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Norræna samstarfsnetið um fullorðinsfræðslu (NVL), Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar og ReferNetið sem er samstarfsnet um starfsmenntun í Evrópu.
Hægt er að sækja erindi fyrirlesara og skoða myndir frá ráðstefnunni á: http://leonardo.is/id/2491
Mikill áhugi var á rástefnunni og mættu um 120 manns.
| Deila þessari frétt: |
|
|



