Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til næstu þriggja ára í menntaáætlun Evrópusambandsins (Lifelong Learning Programme - LLP). Um er að ræða alla flokka styrkja úr öllum undiráætlununum – Comenius, Leonardo, Erasmus, Grundtvig, þveráætlunum, þar með töldum námsheimsóknum fyrir stjórnendur og stefnumótendur í menntamálum (áður Arion og Cedefop) og Jean Monet. Auglýsingin er mjög ítarleg þar sem tilgreind eru forgangsatriði næstu þriggja ára almennt og fyrir hverja undiráætlun. Þá vísar auglýsingin einnig í leiðbeiningar fyrir umsækjendur.
Á heimasíðu Evrópusambandsins er auglýsingin í heild sinni „General Call for Proposals 2012“ og varðar hún eins og áður segir alla menntaáætlunina. Slóðin er http://ec.europa.eu/education/llp/doc848_en.htm
|
Áætlun |
Umsóknarfrestur |
|
Comenius og Grundtvig - endurmenntun 1 |
16. janúar 2012 |
|
Comenius - aðstoðarkennarar |
31. janúar 2012 |
|
Leonardo – fjölþjóðleg yfirfærsluverkefni
Comenius, Erasmus, Grundtvig og Leonardo |
2. febrúar 2012 |
|
Leonardo - mannaskiptaverkefni |
3. febrúar 2011 |
|
Jean Monnet áætlunin |
15. febrúar 2012 |
|
Comenius, Grundtvig og Leonardo - samstarfsverkefni |
21. febrúar 2012 |
|
Þveráætlanir - rannsóknir, tungumál, upplýsingatækni, |
1. mars 2012 |
|
Erasmus stúdentaskipti |
1. mars 2012 |
|
Erasmus – stúdenta- og starfsmannaskipti og |
9. mars 2012 |
|
Grundtvig – aðstoð, sjálfboðaliðaverkefni |
30. mars 2012 |
|
Námsheimsóknir - stefnumótun fræðslumála |
30. mars 2012 |
|
Erasmus kennara og starfsmannaskipti |
15. maí 2012 |
Áhugasamir eru eindregið hvattir til að hafa samband við starfsfólk Landskrifstofunnar til að fá ráðgjöf við undirbúning umsókna.
| Deila þessari frétt: |
|
|



