Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar

 

Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

Upplýsingar á vef EACEA

 

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins
Ferðastyrkir fyrir kennara og skólastjórnendur á vinnustofur og ráðstefnur í nóvember 29.09.2011

Ferðastyrkir fyrir kennara og skólastjórnendur á eTwinning-vinnustofur (Professional development workshops) og ráðstefnur í nóvember:

  • 1) Ráðstefna fyrir skólastjórnendur í Berlín 10.-12. nóvember
  • 2) Vinnustofa fyrir kennara í Brussel 17.-19. nóvember
  • UMSÓKNARFRESTUR TIL OG MEÐ 6. OKTÓBER


1) RÁÐSTEFNA FYRIR SKÓLASTJÓRNENDUR Í BERLÍN 10.-12. NÓVEMBER: "eTwinning: að leiða skóla 21. aldarinnar".

Ferðastyrkur fyrir 3-4 skólastjórnendur í boði - einnig þátttökugjald, gisting og uppihald.

Skipuleggjandi: Landskrifstofa eTwinning í Þýskalandi.

Tungumál: Enska.

Þátttakendur: Skólastjórnendur allsstaðar að úr Evrópu sem hafa áhuga á að nýta eTwinning í skólastarfi.

Skólastig: Skólastjórnendur frá grunn- og framhaldsskólum.

Innihald: Lærið hvernig eTwinning getur komið að gagni í skólastarfi / kynnist straumum samtímans í skólastjórnun / eignist nýja vini og takið þátt í tengslaneti eTwinning.

Ekki gerð krafa um þekkingu á eTwinning.

Upplýsingar: Nánari upplýsingar og dagskrá er að finna á þessari slóð.

SÆKIÐ UM RAFRÆNT Á ÞESSARI SLÓÐ - FRESTUR TIL OG MEÐ 6. OKTÓBER.
 


2) eTWINNING-VINNUSTOFA FYRIR KENNARA Í BRUSSEL 17.-19. NÓVEMBER, FYRIR BYRJENDUR OG LENGRA KOMNA

Ferðastyrkur fyrir tvo kennara í boði - einnig þátttökugjald, gisting og uppihald.

Skipuleggjandi: Landskrifstofa eTwinning í Belgíu.

Tungumál: Enska.

Þátttakendur: Kennarar allsstaðar að úr Evrópu.

Skólastig: Grunnskóli og framhaldsskóli.

Innihald: Tengslaráðstefna til að finna samstarfsaðila /  læra og deila reynslu um eTwinning / læra að stofna og vinna eTwinning-verkefni.

Hvaða fög? Vinnustofan á við öll kennslufög.

Ekki gerð krafa um þekkingu á eTwinning - en bæði byrjendur og lengra komnir í eTwinning geta sótt um.

Skilyrði: Að vera tilbúinn til þess að vinna eTwinning-verkefni á skólaárinu.

Nánari upplýsingar og dagskrá er að finna í þessu skjali: Dagskrá Brussel nóvember (pdf, 56 kb)

SÆKIÐ UM RAFRÆNT Á ÞESSARI SLÓÐ - FRESTUR TIL OG MEÐ 6. OKTÓBER.

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook