Umsóknarfrestir Leonardo 2013

Yfirfærsluverkefni 31 janúar 2013
Mannaskipti 1. febrúar 2013
Samstarfsverkefni 21. febrúar 2013


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 

Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar




NSN_smellihnappur_2.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

 

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast reynslusögur þátttakenda úr ýmsum verkefnaflokkum Leonardo.


 

Snædís Ylfa Ólfasdóttir, nemi í kjólasaum og klæðskera í Tækniskólanum sem fékk Leonardo styrk árið 2011. Hún tók hluta af sínu starfsnámi á saumastofu í Austurríki, þar sem hún vann við að sauma búninga fyrir leikhús og óperu.

Slysavarnaskóli sjómanna fékk Leonardo styrk árið 2011 til þess að heimsækja fimm sambærilega skóla í Evrópu, í Finnlandi, Bretlandi, Írlandi, Spáni og Noregi.

Jól á Spáni

Ég fór út til Barcelona í desember 2006 í starfsnám á vegum Leonardo starfsmenntaáætlunar Evrópu. Ég byrjaði að vinna hjá skrifstofu sem sá um að meðhöndla aðra Leonado styrkþega. Stuttu seinna færði ég mig um set og fékk starfsnám hjá fyrirtæki sem hét Cámara de Comercio de Perú en España (sá um að styrkja og auka viðskipti milli ESB og Perú).

 Þetta var skemmtilegur tími og það gerðist margt skemmtilegt, en ég ætla að segja frá því þegar ég upplifði fyrstu spænsku jólin mín. En ég þekki nokkra Spánverja áður en ég fór til Spánar sem ég kynntist þegar ég var í háskólanámi í Bandaríkjunum. Damian er einn af þeim og hann bauð mér að heimsækja sig og eyða jólunum með fjölskyldu sinni sem býr í Andalucia. Þar eyddi ég nokkrum dögum hjá fjölskyldu hans í litlum bæ sem heitir San Roque. Þegar svo sjálfur aðfangadagur kom, fórum við ásamt fjölskyldunni hans Damians í heimsókn til afa hans og ömmu, þar sem öll stórfjölskyldan hittist.

Ég vissi ekki á hverju ég átti von en ég gerði ráð fyrir því að þetta yrði eitthvað svipað og hérna heima á Íslandi. Hástemmd stemming og snemma í rúmið eftir góðan mat og gos. Ekkert gat verið fjarri sannleikanum! Þegar við mættum þarna tóku amma hans og afi á móti okkur sem voru bæði á níðræðis aldri og buðu okkur strax að setjast við borðið sem var fullt af kræsingum. Svo var opnuð rauðvín og það var drukkið. Aðeins Damian kunni ensku af fjölskyldunni (ég kunni ekki spænsku) en afinn kunni að segja eina setningu á ensku: 'do you wanna beer' og notað þessa setningu mikið (sem ég var alls ekki ósáttur við). Þannig það var drukkuð, borðað, dansað og sungið. Þegar kl. var orðinn 1 um nóttina fórum við unga fólkið (Damian, systir hans og frændsystkini) á klúbba rölt. En það var ekkert lokað þó svo að þetta væri heilagasti dagur ársins (allavega á Íslandi), við djömmuðum langt fram á nótt.

 Daginn eftir þegar við vöknuðum fórum við aftur til afa og ömmu um miðjan daginn. Ég hélt þetta yrði þá eins og jóladagur hérna heima, en það var sko aldeilis ekki! Heldur hélt partý-ið áfram þá um daginn. Þetta var frábær skemmtun og ég kynntist alvöru spænskum jólum og tók fyrstu skrefin í átt að reyna að tjá mig á spænsku. Það gekk líka bara vel þar sem ég náði góðum tengslum við afann sem sagði mér allt um sykureyrin í Andalucia, sem hann vildi meina að væri engu síðri en á Kúbu og rommið í takt við það.

Þetta var frábær skemmtun og gömlu hjónin kvöddu mig með kossum og sögðu mér að mæta með alla fjölskylduna næst. Það er aldrei að vita að ég láti verða af því einn daginn;).

Ívar Másson

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook