Á hverju ári stendur Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB fyrir margskonar viðburðum, allt frá stórum ráðstefnum til smærri viðburða eins og kynningum fyrir verkefnisstjóra.
Námskeið í gerð umsókna um Leonardo YFIRFÆRSLUVERKEFNI
05.01.2012
- Námskeið í gerð umsókna um Leonardo YFIRFÆRSLUVERKEFNI verður haldið fimmtudaginn 5. janúar kl. 13 - 15.
- Námskeiðin verða bæði haldin í Námu, sal Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7, Reykjavík.
- Einnig verða fundirnir sendir út sem fjarfundir víða á landsbyggðinni og verða þeir staðir tilkynntir síðar.
- Athugið að skrá þátttöku: astridur@hi.is
Á námskeiðinu um yfirfærsluverkefni verður farið yfir helstu markmið Menntaáætlunar ESB og uppbyggingu Leonardó hluta áætlunarinnar. Þá verður fjallað sérstaklega um yfirfærsluverkefni, s.s. þróunarverkefni og yfirfærslu þekkingar, innihald þeirra og markmið. Einnig verður farið yfir hvernig skrifa skal vandaðar umsóknir. Leiðbeinendur: Andrés Pétursson, Ásta Vigdís Jónsdóttir, Úlfar Gíslason og Margrét K. Sverrisdóttir.
| Deila þessari frétt: |
|
|



